Steinsstaðir
Á Steinsstöðum er rekið fallegt gistiheimili sem rúmar 50-65 manns. Gistiheimilið er staðsett í hlýlegu og fallegu umhverfi, með trjágróðri og skemmtilegum gönguleiðum. Á svæðinu eru einnig tvö góð tjaldstæði með inniaðstöðu, s.s. eldunaraðstöðu, snyrtingu, geymslu og fleira. Skammt frá tjaldstæðinu eru góð leiktæki fyrir börnin. Á svæðinu er lítill 9 holu golfvöllur fyrir áhugamanninn og sundlaug með heitum potti. Á Steinsstöðum er einnig bílaþvottaplan, rafmagn í húsbíla og losunarútbúnaður fyrir húsbíla.
Hvar eru Steinsstaðir?
Ferðaþjónustan Steinsstöðum er staðsett 11 km. framan við Varmahlíð í Skagafirði, við veg nr. 75. Rekstraraðilar eru Jóhanna Sigurðardóttir og Friðrik Rúnar Friðriksson.
Upplýsingar í símum: 453-8812, 899-8762
Fax: 453-8846
Netfang: steinstadir@simnet.is
GPS hHit: 65° 28,263'N, 19° 20,375'W (ISN93: 484.263, 552.557)